Gullblómið.

Þar sem gullblómið grær

ekkert illt þar að finna

þó flestum finnist fjær

þá vil ég á það minna

 

Kærleikans móðurmál

er Guð í þinni sál.

Guðdómsins viskuskál

er hjartans innsta bál.

 

Garðar Jónsson

 

 

Heilræði
Temdu þér rósemi í dagsins önn og mundu friðinn, sem getur ríkt í þögninni. Reyndu að lynda við aðra, án þess að láta þinn hlut. Segðu sannleikan af hógværð en festu. Hlustaðu á aðra þótt þeir kunni að hafa lítið til brunns að bera, þeir hafa sína sögu að segja.

Forðast háværa og freka, þeir eru æ til ama. Vertu ekki að bera þig saman við aðra, þú verður engu bættari, sumir eru ofjarlar þínir, aðrir mega sín minna. Gakktu ótrauður að hverju verki, láttu ekki sitja við orðin tóm.

Legðu alúð við starf þitt, þótt þér finnist það léttvægt. Vinnan er kjölfestan í völtum heimi. Vertu varfærin í viðskiptum, því margir eru viðsjálir. Lokaðu samt ekki augunum fyrir dyggðinni þar sem hana er að finna. Margir stefna að háleitu marki og alls staðar er verið að drýgja dáð.

Vertu sannur. Reyndu ekki að sýnast. Ræktaðu ástina, því þrátt fyrir þyrrking og kulda er hún fjölær eins og grasið. Virtu ráð öldungsins, sem víkur fyrir æskunni. Stældu hugann svo hann verði þér vörn í hretviðrum lífsins. Auktu þér ekki áhyggjur af ástæðulausu. Margur óttinn stafar af þreytu og einmannakennd. Agaðu sjálfan þig, en ætlaðu þér af. Þú ert þessa heims barn, rétt eins og trén og stjörnurnar, og þú átt þinn rétt. Þú færð þín tækifæri þótt þú gerir þér það ekki alltaf ljóst.

Haltu frið við Guð-hvernig svo sem þú skynjar hann-hver sem yðja þín er og væntingar í erli lífsins. Vertu sáttur við sjálfan þig.

Lífið er þess virði að lifa því þrátt fyrir erfiðleika, fals og vonbrigði. Vertu varkár. Leitaðu hamingjunnar.

Fannst í gömlu St.Pálskirkjunni í Baltimore Bandaríkjunum; ársett 1692

Krefjast skaltu mikils

af sjálfum þér,

vænstu lítils af öðrum.

Færra mun þá valda þér ama.

Konfúsíus

 

Faðir vor

Faðir vor, þú sem ert á himnum.
Helgist þitt nafn,
til komi þitt ríki,
verði þinn vilji,
svo á jörðu sem á himni.
Gef oss í dag vort daglegt brauð.
Fyrirgef oss vorar skuldir,
svo sem vér og fyrirgefum
vorum skuldunautum.
Og eigi leið þú oss í freistni,
heldur frelsa oss frá illu.
Því að þitt er ríkið,
mátturinn og dýrðin að eilífu.
Amen.

 

Til Hvers?

Ef dauðinn væri endalok alls, og ekkert skipti máli sem gjört væri,

hvorki gott né illt,
Því þá alla þessa viðleitni og þörf til að bæta sig?
Væri ekki betra að synda í eigingjörnum forarpoll og olboga sig áfram í lífinu burtséð frá tilliti og öðru sem tefur mann í sókn til hærri metorða í stiga hégómans. En hvað bíður manns í efstu tröppu?
Hvað um allar þær hendur sem héldu við stigann á meðan prílinu stóð?
Jú hugsaðu!
Reyndu að standa einn í efstu tröppu, óstuddur, aleinn og yfirgefinn, og finndu hvað lítið hald er í engu.
Þá skiptir minnstu hverju þú hefur áorkað eða komið í verk,

og það sem þú hefur í höndunum skiptir engu.
Því þú sérð að það er ekkert hald í því þarna uppi þegar stiginn byrjar að rugga!
Og síðan falla og falla.
Lífið er spegilmynd sem speglast í sjálfu sér,

 endurkastast síðan í mynd sinni endalaust
Áfram og áfram og áfram.
Joakim.

Vertu alltaf hress í huga
hvað sem kann að mæta þér.
Lát ei sorg og böl þig buga,
baggi margra þyngri er.

Vertu sanngjarn, vertu mildur,
Vægðu þeim sem mót þér braut.
Bið þinn Guð um hreinna hjarta
hjálp í lífsins vanda og þraut.

Treystu því að þér á herðar,
þyngri byrgði ei varpað er.
En þú hefur afl að bera,
orka blundar, næg í þér.

Þerraðu kinnar þess sem grætur,
þvoðu kaun hins særða manns.
Sendu inn í sérhvert hjarta,
sólargeisla kærleikans.

Lækningarbæn

Elsku Guð-Móðir-Faðir

Ég bið um að vera hreinsuð/hreinsaður með
hinu kristalhvíta ljósi Guðs,
hinu Græna Ljósi Lækningarmáttarins
og hinu Rauðfjólubláa ljósi umbreytinganna.

Ég bið um að allt neikvætt verði tekið frá
mér og skilað aftur til uppruna síns.

Ég bið um að (sá/sú, sem beðið er fyrir)
verði uppfylltur og umlukin ljósi.

Ég bið um að ég verði uppfyllt(ur) og
umlukin(n) hinu verndandi hvíta ljóri Guðs.

Ég bið um að vera notuð/notaður sem
Farvegur lækningarmáttar fyrir (þann, sem beðið
er fyrir) í hans æðstu þágu, innan
hans vilja og innan hins Guðdómlega vilja.

Ég er reiðubúin(n) að taka á móti krafti
lækningainnar frá meisturum mínum og
vermdar englum, sem vinna í krafti ljóssins
og í ljósi Guðs.

Ég þakka fyrir alla mína hamingju og allt
Mitt lán, einkum tækifærið til að hjálpa
Og þjóna öðrum.

Ljóð

Jesús er Guð þinn,
því aldrei skalt gleyma.
Hann gengur við hlið þér
og leiða þig vill.
Þú eilífa lífið,
átt honum að þakka,
hann sigraði dauðann
og lífið gaf þér.
Guðs son á himni
nú vakir þér yfir.
Hann gleymir ei bæn þinni
hver sem hún er.
Líf mitt sé falið þér,
eilífi faðir.
Faðminum þínum ég hvíla vil í.
Sigurbjörn Þorkelsson