Lög fyrir Bjarmann hug- og mannræktarfélag.

  1. Félagið heitir Bjarminn og var stofnað árið 1997.

  2. Markmið félagsins er mannrækt, manngæska og að auka andlega þekkingu

  3. a) Stjórnarkjör fer fram á aðalfundi.                                                         b) Félagsmaður getur hver sá orðið sem greiðir árgjald, árgjald skal ákveða á aðalfundi.

  4. Stjórn félagsins skipa 5 menn, formaður, gjaldkeri, ritari, og 2 meðstjórnendur, auk tveggja varamanna.                                         Einnig skal velja 2 menn til endurskoðunar ársreikninga. Stjórnin skipti með sér verkum. Við stjórnarskipti skulu 2 -3 úr fráfarandi stjórn sitja áfram, þó má endurkjósa stjórn í heild gefi stjórnarmenn kost á sér. Kosning skal vera skrifleg og óhlutbundin.

  5. Aðalfundur skal haldinn að hausti ár hvert. Og fara þar fram venjuleg aðalfundarstörf. Aðalfundur skal boðaður með viku fyrirvara. Lögum félagsins má breyta á aðalfundi og taka þá þegar gildi, nema annað sé ákveðið á fundinum. Tillögur um lagabreytingar skulu hafa borist stjórninni tímanlega fyrir boðaðan fund. Lagabreytinga skal getið í fundarboði og 2/3 fundarmanna þarf til að samþykkja breytingar á lögum félagsins.

  6. Verði félagið lagt niður skal fjármunum þess varið til líknarmála samkvæmt ákvörðun aðalfundar.